Ég er að vinna hjá Kaffitár og hef verið þar í tæplega 3 ár með skóla. Frábær vinnustaður, góður mórall (á öllum kaffihúsunum), og langflestir hafa myndað góð vinasambönd sín á milli. Launin eru kannski ekki þau bestu í heimi, en þau hækka eftir því sem maður eldist og eftir því hve lengi þú hefur unnið hjá fyrirtækinu. Ég fékk t.d 89.000kr núna fyrir 8 daga í mánuði, en ég vinn alla fimmtudaga og alla sunnudaga. Ég veit ekki hvernig þetta er hjá öðrum kaffihúsum en hjá Kaffitár er mikill...