Ég á Toyotu Corollu GT-i '88 sem að nýlega byrjaði að hegða sér undarlega. Hún gengur illa á lágri inngjöf, og gengur bara hálfan hægaganginn (500 rpm). Stundum fellur líka snúningsmælirinn um 500-1000 rpm þegar ég er að keyra og alltaf þegar ég er að kúpla til að skipta um gír. Þegar ég stoppa á gatnamótum (eða bara yfirleitt) drepur hún oft á sér. Einstaka sinnum er hún heillengi í gang aftur. Ég skipti um kerti, kertaþræði, kveikjulok, kveikjuhamar og háspennukeflið. Ég hef ekki hugmynd...