Ég tékkaði á þessu og fann út að Sunny GTi '92 sem er keyrður 165 þús. km er metinn á um 400 þúsund. Bíllinn sem ég er að velta fyrir mér er hvítur með álfelgum, græjum, GTi-R húddi (finnst ykkur það vera rice?), neonljósi í afturrúðu, Nissan límmiða efst í framglugga, Nike límmiða í afturrúðu og virðist vera vel með farinn. Fann þennan bíl á finndu.net og þar stendur að hann (eigandinn) vilji fá 540 þúsund (sem mér finnst full mikið). Ég hef verið að velta fyrir mér að bjóða honum 450-475...