Jamm hver veit. En það er rétt.. það vantar almennt firewire tengið á flestar tölvur fyrir utan Mac. Persónulega gæti ég ekki hugsað mér að nota USB fyrir utanáliggjandi diskana mína. Enda væri það einfaldlega ekki hægt þar sem að hönldar ekki nógu mörg stream af HD video efni.
Fáðu þér bara firewire kort í tölvuna þína. USB tengið á vélini er bara til að færa ljósmyndir á milli en ekki myndefni. Sennheiser me66 í pfaff og ma300 tengi frá canon til að geta tengt hann með XLR við vélina.
ahm þarfinar eru mismunandi. Mér finnst það of mikið að vera með 15“ mbp… þessvegna keypti ég líka um daginn notaða powerbook 12” sem virkar bara fínt fyrir mig :P
Tilhvers? Ég hef Firewire 800 fyrir external diskana mína, firewire 400 fyrir DV input, usb 2 fyrir prentara og sata fyrir internal diskana mína. Hvað ætti ég að nota þetta tengi í?
Ég er með hugmyndir. Ein er sú að fá einhvern sem er öruggur með sig í stafsetningu til að skrifa tilkynningar og auglýsingar. Og hin er að nota eitthvað annað en “Óskarfilms” nafnið. Ef þetta á að vera hópur sem vinnur sjálfboðavinnu þá finnst mér það rangt ef eitthvað “fyrirtæki” sem heitir Óskarfilms fái credit. Annars þá fæ ég alltaf svona kjánarhroll þegar einhverjum dettur í hug að gera ameríska spennumynd á íslandi. Auðvitað er það bara vegna þess að maður er ekki vanur hugsunini um...
Já það er rétt hjá þér. Síðan er ný og þá á eftir að setja inn upplýsingar. En ef þú hefur spurningar eða vantar upplýsingar: Formaður LÍA, Garðar H. Gunnarsson S. 896-7392 Mail: stjorn@lia.is
Geðveikt sniðugt að reyna að fara leynt með svona “starfsemi”. Augljósar umræður um svona hluti eru bannaðar og það er tekið á þeim. (eyða efninu og/eða bann)
Svo má ekki gleyma að þær eru svo flotta að þær mega alveg vera inní stofu ;) Nei svona öllu gríni sleppt þá þarf fólk bara að finna hvað hentar sér, þetta hefur allt sína kosti og galla.
Áttu myndina ennþá á spólu? Þá væri best fyrir þig að taka myndefnið aftur inn á tölvuna og nota þá sjálft movie maker forritið til að importa efninu. En ef þú átt myndefnið ekki lengur þá er það bara leiðin sem hann bendir á hér að ofan.
Ekki heldur einhver að þetta sé mögulegt? Ef fólk vill enga utanaðkomandi ritskoðun þá setur það bara dulkóðun á efnið. Hvort sem það er gott eða slæmt þá er internetið nýlenda sem fólkið á og stjórnar. Þannig mun það alltaf vera.
Flott. Hehe fólk virðist ekki fatta neina vinnslu nema ofur áberandi hluti. Það er líka list að gera góða mynd betri án þess að fólk fatti að unnið hafi verið með myndina.
Markmið fyrirtækisins er að vera sanngjarnt gagnvart listamönnum í stað þess að vera sama svínið og meirihluti íslenskra útgáfufyrirtækja Fagleg ummæli? Aldrei upphefja sjálfan sig með því að draga aðra í svaðið.
Ef það er gott þá er bara eðlilegt að borga fyrir það. Efast um að þú finnir einhverju síðu sem gerir þetta frítt. En þessi er góð og sanngjarnt verð: http://www.istockphoto.com/
Ef þú ætlar að vera með mjög mikið efni t.d stuttmynd í lengri kantinum eða í fullri lengd þá eru 500gb varla nóg. Ég er með 700gb bara í capture og það er eiginlega ekki nóg fyrir mig… ég er samt ekkert að vinna með HD bara SD.
Hmm ætti að ganga í eitthvað. En skjákortið í svona vél er ekki stórt og það er ekki hægt að setja mikið af vinnsluminni í hana. Ef þú ætlar þér ekki of stóra hluti þá er vel hægt að nota hana. Hvaða forrit hefurðu hugsað þér að nota?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..