Nei, nú er mér allri lokið. Össur, hinn frábæri, æðislegi, yndislegi formaður Samfylkingarinnar hefur nú sagt að hann vilji lækka skatta á fyrirtæki, og helst einstaklinga líka. Þessu lýsti hann yfir í fréttunum og auðvitað datt fréttamanninum ekki í hug að spyrja afhverju honum hefði snúist svona ofboðslega hugur. Össur hefur síðustu árin lítið annað gert en gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að lækka skatta, sérstaklega vegna þenslunnar o.s.frv. Hann hefur ekki mátt heyra á það minnst. Fyrir...