Mig langar að segja ykkur frá Títu, elskunni minni. Þetta er/var hún Títa mín, fædd á Flekkudal í Hvalfyrði, hún var eins og sést, mjög sæt og skemmtileg. Ég fékk Títu seinasta sumar, hún var þá 7 mánaða villingur sem vissi sko ekki að það væru til staðir þar sem væru meira en 3 hús í þyrpingu.. Fljótlega þó fór hún að elska að vera í bílnum með mér og fylgjast með öllum spennandi hlutunum í kringum okkur á keyrslu, hún fylgdi mér nánast hvert fótmál, í vinnu hjá Íshestum, að hitta vini...