Hmmm ég er örugglega með asnalegustu ör í heimi. Er með eitt á vinstri handarbaki eftir “hommatest” ójá, nudda blýanti á fullu á hendinni á manni og ef maður kippti sér frá eða gafst upp á innan við eina mínútu eða eitthvað þá var maður hommi. Flott ör það. Svo er ég með eitt á hægri augnbrún eftir að ég var óvart skallaður af vini mínum á balli… Svo er ég með 4 ör á maganum eftir að hafa farið í aðgerð og eitt af þeim er inni í naflanum, svo er ég með tvö á kálfanum eftir fótboltaskó.