Ástæðan fyrir að mér finnst Bowie ekki ofmetinn er einmitt það hvað honum tókst alltaf að gera það sem var vinsælt, og jafnvel betur en hinir. Ziggy Stardust var t.d. miklu betri tónlist heldur en Alice Cooper og T-Rex. Svo hélt hann áfram að gera góða tónlist alveg fram á síðasta áratug, sem er meira en hægt er að segja um flestar sveitir þessa tíma. Nefni t.d. Industrial Metal plötuna hans, sé ekki Mark Bolan fara að gera neitt nema glamrokk ef hann væri ekki dauður.