Höldur hrími þakinn, hrakinn eygir bitran bersan. Í vegi hans sá stendur. Vigur sinn hann mundar, blundar vígamannsins eðli brjósti hans í. Bersinn rís á fætur, lætur í ógnarhramma sjást. Hvergi er sá banginn. Fýkur yfir hæðir, næðir napur vindur yfir. Uppi er á fjöllum kalt. Höldur spjóti otar, potar því í bersann æstur - þá björninn hlýtur sár. Loftir klærnar kljúfa, rjúfa þær ásýnd mannsins skarð. Blæðir mjög úr beni. Höldur gerist æfur, kræfur vigrinum hann kastar. bersa í hjartastað....