Jónas er önnum kafinn í vinnunni þegar Magga hringir: “Jónas minn, heldurðu að þú getir nokkuð hjálpað mér þegar þú kemur heim?” segir hún. Jónas fær hland fyrir hjartað og fer að ímynda sér allar þær mögulegu og ómögulegu ógöngur sem Magga gæti hafa komið sér í. “Aaa, já-já, auðvitað, elskan mín, hvað er að?” “Jú, sko,” segir Magga, “ég var að byrja á nýju púsluspili og það er svo hrikalega erfitt! Ég er ekki einu sinni búin að finna jaðarbútana ennþá.” Vá, Jónasi létti heilmikið að Magga...