Þar sem þetta er búið að vera eitthvað svo lifandi spjall upp á síðkastið þá ákvað ég að koma með smá svona innskot. “Það var handsalaður 2ja ára samningur á mánudagskvöldið 1. apríl (ekkert gabb) sem tekur gildi 1.júlí n.k. Friesenheim er í 3. sæti 2. deildarinnar, þeir eiga möguleika á að komast upp í 1. deildina en það er frekar ósennilegt. Þetta er lítill klúbbur sem hefur verið í þessari deild síðustu 7 árin og hafa núna sett stefnuna á 1. deildina. Liðið er með aðsetur í Ludwigshafen...