Einsog aðrir hafa sagt, hún gerir þetta allt líklegast bara vegna þess hve hún elskar þig mikið. Ég sjálf á alveg æðislega foreldra, eina sem ég get kvartað undan er hvað þau eru paranoid stundum, en meina, það er bara því þeim þykir vænt um mig. Reyndu bara að þrauka þetta, ekki æsa þig á móti þegar hún verður reið. Þegar þú flytur að heiman, sem er líklega ekki svo mörg ár í, þá færðu að laga til hvenær þú vilt og mála allt sem þér sýnist. Hlakkaðu bara til.