Ég hef aldrei dottið af baki, en oft verið að því komin. Versta reynsla mín í kringum hestana var einhverntíman fyrir 4 árum. Ég var að spretta af merinni sem ég hafði verið að ríða á og vinkona mín var að spretta af hestinum sínum við hliðina á mér. Fyrir utan gerðið sem við vorum í var svo einhver polli af reiðnámskeiði að sveifla písk upp og niður, sem náttúrulega hræddi hestana og hestur vinkonu minnar hoppaði til hliðar þannig ég klemmdist á milli hans og merinnar sem ég var með. Það er...