Ég sagði það sem ég sagði útfrá þessu myndbroti sem ég sá. Ég vissi ekkert um að það hefði verið hent grjóti eða hesturinn barinn með písk í andlitið. Það á að sjálfsögðu alls ekki rétt á sér og kemur tamningu ekki hætisthót við. Bætt við 22. maí 2007 - 16:29 Ég persónulega er á móti tamningu með OFBELDI. En einsog einhver sagði áður hérna á þræðinum á Kompás það virkilega til að blása mál upp all svakalega og mér finnst of langt gengið að kalla þennann mann holdgerfing dýraníðings, illmenni og ógeð.