Þegar ég var ný orðin 16 ára, búin með grunnskólann, náði ég smávegis stjórn á lífi mínu, ég hafði lent í einelti alla skólagönguna og var alvarlega þunglynd og átti ekki marga vini til að treysta á. Sumarið leið eins og hver annar tími, það var kominn október og eitt kvöldið leiddist mér all svakalega, ég tók upp tólið og hringdi í félaga minn, bað hann um að koma og gera eitthvað með mér, hann sagðist vera að fara á djammið, ég bað hann þá um að hitta mig í smá stund áður, hann gerði það...