Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Weezer - Rauða platan (1 álit)

í Rokk fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Nú var nýjasta Weezer platan að koma út í dag svo ég spyr: Vitiði hvenær hún komi í verslanir hérlendis?

Shadowrun (0 álit)

í Spunaspil fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Er þetta kerfi eitthvað sniðugt? Hvernig virkar það, svona í grófum dráttum? Eina sem ég veit um þetta er að heimurinn virðist alla veganna awesome.

Rauður góður (7 álit)

í Borðaspil fyrir 18 árum
Hér hefur rauður staðið sig vel í æsispennandi lúdóleik.

Hvaða litur? (5 álit)

í Borðaspil fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvaða lit veljið þið oftast þegar þið spilið lúdó? Persónulega er ég mest fyrir bleiku kallanna ef þeir eru í boði. (þá er það 6 manna lúdó) Annars eru rauðir líka góðir, þeir eru svo ógnvekjandi.

Ratatatatatatata! (8 álit)

í Black and white fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Aukapakkinn fyrir The Movies mun gera það auðveldara að búa til flottar hasarmyndir.

Hvar er Jóakim? (15 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Krossferðamenn hafa ráðist inn í Konstantínópel (sem kallast núna Istanbúl) og vinna hörðum höndum við það að refsa íbúum þess fyrir guðlast. En hvar er Jóakim?

Pæling (9 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég var að hlusta á lagið 99 Luftballoons með Nenu og fór að pæla svolítið. Hvað hefur maður eiginlega að gera við 99 loftbelgi? (eða blöðrur, er ekki alveg viss um hvort sé verið að ræða) Svo ég leita til ykkar, kæru Sorparar. Komið endilega með ykkar hugmyndir og tillögur.

Hvar er Jóakim? (19 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hinn illi her Saurons ræðst af fullum krafti á borgina Minas Tirith, síðustu von mannkynsins. En hvar er Jóakim?

Hvar er Jóakim? (8 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Enn á ný er Jóakim á flækingi. En hvar leynist hann í þetta sinn?

Hvar er Jóakim? (12 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Jay Leno tekur viðtal við strákanna í N'Sync, en hvar er Jóakim? Sá fyrsti til að svara rétt fær hrós og jákvæðar hugsanir.

Af hverju datt apinn úr trénu? (4 álit)

í Húmor fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Af því að hann var DAUÐUR! Hahahahahaha!

Orrmundur gerir banner (20 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Góðan daginn, lömbin mín. Hann Orrmundur vinur ykkar tók eftir því að þetta áhugamál þjáðist af banner skorti. Þetta olli honum miklum áhyggjum svo hann ákvað að reyna að hjálpa til. Hérna er bannerinn sem ég gerði. Ég valdi leikina Deus Ex, Fallout og Baldur's Gate sem viðfangsefni, ekki bara af því að þetta séu allt frábærir leikir heldur líka af því að mér fannst þetta bara passa vel saman á myndinni. Endilega segið mér hvað ykkur finnst.

Hvar er Jóakim? (5 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég hef ákveðið að senda reglulega inn myndir hingað af Jóakim á stöðum þar sem hann getur reynt að falla inn í hópinn. Fyrsta myndin er að sjálfsögðu auðveld, svo skal ég reyna að gera þetta erfiðara og erfiðara í hvert skipti. Fyrir forvitna þá notast ég við Adobe Photoshop, Google og of mikinn frítíma við gerð þessara mynda.

Hversu mikið er of mikið? (7 álit)

í Spunaspil fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég hef verið í léttum undirbúningi fyrir D20 campaign sem æég ætla að stjórna þangað til ég hyggst næla mér í reglubókina. (Næstu viku, líklegast) Undirbúa borg til að hafa sem sögusvið og svona. Ætla að hafa þetta mjög mafíutengt (þó frekar mikill hasar fílingur) en þá einmitt rakst ég á þá spurningu, hversu margar mafíur passa inn í eina borg? Ein? Tvær? Þrjár? Ég veit ekki alveg hversu margar eru of margar. Svo ég leita til ykkar, Spunaspils Hugara.

Grikkirnir góðu (3 álit)

í Black and white fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Alltaf hressir, þessir Grikkir. Sá þessa á Gamespy í dag, ákvað að deila henni með ykkur.

Glæpurinn, kafli 1 (8 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ragnar beygði inn í litlu götuna, hann skoðaði fínu húsin með litlu grindverkunum í kring. Lítill garðálfur með öxi starði glottandi til hans, hann minnti Ragnar á brjálaðan axarmorðingja. Bíllinn hélt áfram sinni hægu göngu niður götuna, hægt en örugglega nálgaðist hann húsið á endanum, áfangastaður dagsins. Ragnar lagði bílnum á gangstéttarbrúninni fyrir utan húsið. Þetta starf fór stundum illa í hann, ekki það að hún angraði samviskuna hans eitthvað mikið, gerði það fyrst en eftir nokkur...

D20 Modern (9 álit)

í Spunaspil fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hefur einhver hér einhverja reynslu af þessu kerfi? Þetta er nefnilega eitthvað sem mig hefur lengi langað að prófa, galdrar, drekar og sverð verður þreytt á endanum.

Kærleikskorkurinn (60 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jæja, kæru hugarar. Ég hef tekið eftir miklum hatri og óánægju hér á forsíðukorkunum. Þetta leist mér ekkert alltof vel á svo ég ákvað að gera þennan hérna kork. Tilgangur korksins er að segja eitthvað fallegt um aðra hugara, eða bara alla hugara yfirhöfuð. Ég vil þá bara byrja á því að segja að mér finnst þið öll vera fín á ykkar eigin hátt, ég ætla ekkert að neita því að sum fá mig til að hlæja meira en aðrir en kærleikurinn nær yfir ykkur öll. Byrjið nú, komum kærleiknum á korkanna!

Freskja (17 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hefur einhver pælt í þessu? Þar sem orðið “ófreskja” er til þá ætti “freskja” að vera það líka. Og hvað er þá freskja? Það þurfum við að vita til þess að geta skrilgreint hvað sé það ekki, þ.e. ófreskjur. Hver veit, kannski ert ÞÚ ófreskja! Ég vil fá fagmannlegt álit ykkar, og helst sem fyrst.

Villimaðurinn (34 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Villimaðurinn frá Diablo 2 er nokkuð merkileg persóna. Skemmtileg og sniðug, full af óvæntum uppákomum… Ekki beint. Villimaðurinn ógurlegi er hin ógnvænlegasta drápsvél, satt er það, en eitthvað vantar upp á persónutöfra þessa hrausta manns. Hann ferðast einn um löndin en enginn veit af hverju. Gengur um hin ýmsu lönd og lemur vondu kallana, það er hans ævistarf. Og Jebus veit að hann er andskoti klár í því. Við skulum núna fara aðeins nánar út í þetta allt saman. Byrjum á byrjuninni....

Beefcake? (1 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta er barbarinn frægi úr Diablo 2.

Eftirlætis persónur ykkar (11 álit)

í Spunaspil fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hverjar eru uppáhalds persónur ykkar? Endilega segið frá. Reyna að fá smá líf hérna. Hjá mér myndi það vera sú nýjasta, mennskur Cleric sem tilbiður sólguðinn Pelor og notar Healing og Sun domain-in. Þessi Cleric ber nafnið Ramon. Ramon Rodriguez. Hann er suðrænn og seyðandi og hið mesta kvennagull. Sumir vilja halda því fram að það sé ekki hegðun við hæfi starfsins en hann hundsar það fólk bara. Hví ætti hann ekki að gera það sem hann gerir? Hann er bara að dreifa ást og hamingju á sinn...

Þögn (17 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 20 árum
Þögn… Þögn hafði verið ríkjandi undanfarna mánuði. Fáir komu, fáir fóru, allt hélst rólegt. Fólk hélt áfram sínu daglega lífi eins og það hafði alltaf gert, nema nú var hjarta þess þungt. Söknuður hin ríkjandi tilfinning, sorg þar á eftir. “Hvert fóru þeir?” velti fólkið fyrir sér. “Hvað kom fyrir?” Enginn vissi hvað hafði gerst, og enginn þorði að spyrja. Sorgin var einfaldlega of mikil. Á nóttunni, þegar svefn náðist ekki, syrgði fólk og rifjaði upp gömlu daganna. “Gullna Tímabilið” var...

Bardagalistir (0 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Svona bara kallar að slást. Fann þetta á www.martialway.com

Skot á Mark (11 álit)

í Teiknimyndir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hver man ekki eftir þessum frábæru fótboltateiknimyndum? Aðal karakterinn með sitt ofur góða Arnarspark. Þættirnir gerðust í Ítalíu ef ég man rétt. Fyrst var þetta bara um Ítölsku unglingadeildina (ef ég man rétt) og nokkra táninga þar. En í seinni seríu(m) voru aðal persónurnar komnar saman í landsliðið. Veit einhver hvar/hvort sé hægt að nálgast þessa þætti?<br><br>————————- If life seems jolly rotten, There's something you've forgotten, And that's to laugh and smile and dance and sing
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok