Þetta var rosaleg keppni. Mér fannst liðið okkar í MA standa sig frábærlega, og það að hafa náð þessum 7 stigum sem eftir voru og komið keppninni í bráðabana.. Snilld. En þetta tók á, ég er ennþá að jafna mig, og ég felldi tár við tapið. En frábær keppni. En hefðum við unnið, þá hefði klárlega orðið vesen útaf 400m spurningunni. Og mér þótti það æðislegt þegar Konni viðurkenndi það að MR stóð upp og kallaði MA! MA! MA!