Mér finnst Coke Light betra. Alist upp við að drekka light drykki vegna sykursjúks fjölskylduaðila svo.. Og mér finnst bara of væmið sykurbragð af venjulegu Coke.
Kannast við sumt af þessu. Það sem böggar mig eiginlega mest er þegar það er geeeðveikt mikið að gera og allir að bíða, og svo þegar maður fer að afgreiða einhvern sem er búinn að bíða, þá er hann ég æææætla að fááá…hmmmm veit ekki alveg. Þá verð ég stundum alveg rangeygð. Kommon, nota tímann á meðan þú bíður og ákveddu þig! Smá kommon sense og þú sparar tíma fyrir alla.
Þegar ég vann í fiski þá var dagurinn helvíti ef maður var ekki með iPod eða útvarp. En ég vinn í bakaríi núna svo..nei. En þú ert svo að vitna í mig í undirskriftinni þinni! I feel very special now:> Eina takmark mitt sem er eftir núna í lífinu er að komast í séð og heyrt.
Já ok. Varst það kannski þú sem hleyptir mér í gegn til að komast inní íbúðina mín frá svölunum þegar ég læsti mig úti?:D Var einhver strákur allavega sem reddaði mér. Samt líkleg yngri en ég..
Ef þú ert búin að láta barna þig, þá hefðirðu átt að hugsa útí þennan hluta fyrr. En ok, hætt að vera vond. Ég kveikti á Rúv um daginn, og þá birtist kona á skjánum að glenna sig og þrumaði út tvíburum. Það var ógeð. Ég var pínu stjörf í smá tíma.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..