Einu sinni átti ég hamstur sem hét Bingó. Hann var dökkbrúnn, ljósbrúnn og hvítur með rosa sæt augu. Ég fékk hann þegar ég var fimm ára. Bingó varð ekki einu sinni eins árs því að hann dó rétt fyrir afmælið sitt. Við leyfðum honum alltaf að vera laus inni í herbergi systur minnar smá stund á dag og einu sinni slapp hann út úr herberginu og komst næstum því út. Inni í herbergi systur minnar, við sáum það þegar hún var að breyta herberginu sínu, að hann hafði eitt hornið undir rúminu sem...