Afi Galdrakall Einu sinni var lítil stelpa sem þurfti að finna galdrabragð til að sýna í skólanum næsta dag. Stúlkan fór fyrst til pabba síns og spurði hann: “Pabbi, viltu kenna mér galdur?” En þá sagði pabbinn: “Nei, ég kann enga galdra, farðu og spurðu mömmu þína.” Stelpan fór þá að spurja mömmu sína. Þegar stelpan fann mömmuna var hún á fullu að baka í eldhúsinu. “Mamma, viltu kenna mér galdur?” segir stelpan. “Nei, ekki núna, ég er of upptekin. Spurðu afa þinn.” svarar mamman. Stelpan...