Barn sem fæddist í gær, þann 6.6.06, og vó að auki 6 pund og 6 únsur, hefur verið nefnt Damien eftir aðalpersónunni í hrollvekjunni Omen. Móðir barnsins, Suzanne Cooper, segist hafa haldið í vonina að fæða barnið á þessum degi svo hún gæti skýrt barnið sitt eftir hinum alræmda skrattabarni sem hræddi líftóruna úr kvikmyndagestum árið 1976, og nú aftur 30 árum síðar. Talandi um töluna sex þá fæddist barnið sex dögum eftir að móðirin var sett af stað. „Omen er ein af okkar uppáhaldsmyndum og...