Þann 15. september verður danstónlistarpartí á bát í Reykjavíkurhöfn í boði Corona, nánar tiltekið á Humarskipinu, en það er veitingastaður sem hefur verið starfræktur síðan snemma í sumar. Humarskipið er fast við bryggju, staðsett í höfninni fyrir neðan Tvo Fiska og Kroa Thai, mitt á milli Kolaportsins og Hamborgarabúllunnar. Partíið verður á öllum þremur hæðurm skipsins, og mismunandi músík á hverri hæð fyrir sig. Strákarnir í Breakbeat.is munu taka undir sig efstu hæðina og kokka ofaní...