Ég lendi alltaf í þessu. Seinast var ég í hermannabuxum, hljómsveitarbol, hermannastígvélum og með svona belti með littlum göddum á (ég hef aldrei tekið armböndin með mér í gegn, pakka þeim bara niður) og það var allt gegnumlýst hjá mér og spurt hvort að ég væri með áfengi, tóbak eða snuff (sem ég hafði ekki hugmynd um hvað væri). Svo handleitar hann í töskuni og tekur upp Pampers bleyju pakka sem ég var að geyma fyrir frænu mína, hennar taska var full, og þrumar yfir mig: Hvað er þetta?!?!...