Fáránlegt að vera að bera svona mikil ósannindi upp á bíóin. Í fyrsta lagi minnkuðu Sambíóin ekki popppoka um helming. Í febrúar í fyrra var verð hækkað á poppi um 10 krónur á allar stærðir (í öllum bíóum, samkvæmt nýjum taxta). Öðru lagi vil ég benda á að aðilinn sem ekki vill fá vatnsblandað kók má vel koma með þrýstikút að heiman og drekka kókþynni, því eins og í langflestum öðrum drykkjum er undirstaðan í kóki vatn. Ekki er meira vatn í vélum kvikmyndahúsanna ef þú ert að meina það....