Já nú er japanska stúlknapoppsveitin Berryz Koubou að fara að gefa út nýja smáskífu sem er cover af þessu bráðskemmtilega þýska Eurovisionlagi sem lenti í 4. sæti árið 1979. Eitt af mínum uppáhalds Eurovisionlögum. :0 Fannst það bara nógu áhugavert til að sýna ykkur það. Hvernig finnst ykkur að heyra lagið á japönsku? Hvernig finnst ykkur lagið sungið af 7 litlum stelpum?? :0 Myndbandið var að skella á netið í dag, endilega kíkið ef þið hafið áhuga. (: [youtube]http://youtube.com/watch?v=ZhGxYccuKMc
Ég er að DEYJA mig langar svo að eiga þessa þætti á DVD, að sjá þetta aftur og aftur og aftur.. Var komin einhver ástæða fyrir því að þetta er ekki til á DVD? Er einhver ástæða fyrir því að það muni ekki koma? Því það væri það besta sem gæti hugsað mér. Ég myndi standa í langri biðröð til að fá að kaupa þessa þætti. Bara sakna þáttanna allt í einu. Bestu íslensku þættir sem ég hef séð. Ef rugl eins og strákarnir er að koma út á DVD finnst mér alveg að Fóstbræður mættu koma út líka.
Grethel Carmine að knúsa heimilisköttinn hana Lisu á meðan systur hennar Anneliese og Friede borða morgunmat. Sést líka í lappirnar á pabbanum, honum Lawrence..
Scarsdale, hverfi sem ég bjó til. Inniheldur 19 grunn-fjölskyldur eins og er (fyrsta kynslóð) Og eitthvað 17 fjölskyldur sprottnar út frá því (önnur kynslóð) Er að vinna í þeim öllum í einu og það tekur mjög langan tíma… hehe. Langar að búa til risa ættartré þar sem simmar verða að giftast öðrum simmum sem eiga jafn mikinn bakgrunn og þeir, til að skoða hvernig hlutirnir erfast líka og svoleiðis. (Þoli ekki að láta þá giftast townie-um, því þeir eiga enga forfeður)
Ég var að finna mjög góðan svona “Name Generator” þar sem þú getur auðveldlega valið hvers konar nafn þú vilt, hvort það sé ævintýranafn eða alvörunöfn frá mismunandi löndum (þar á meðan Íslensk), og svo hvort það á að vera stelpu eða strákanafn, og.. já. Ég er lengi búin að vera að leita að svona. Þetta er nefnilega allt á sama stað, mjög aðgengilegt. Var t.d. að búa til fjölskyldu frá Kóreu í gær og þá hefði þetta komið mér að góðum notum! hérna er svo linkurinn.....
Já… nú er byrjað að sýna anime útgáfu af Powerpuff Girls í Japan, hmmmm. Og þetta fannst mér nógu áhugavert til að segja frá hér.. Jæja. hér sjáiði opnunarlagið. :0 http://www.youtube.com/watch?v=ra-ZdPQCTrQ Þetta er ekki eins og upprunalega teiknimyndin eins og kannski sést.. Og sumt hefur breyst. Til dæmis eru stelpurnar ekkert skyldar í þessarri útgáfu. Og hér getið þið lesið meira um þetta fyrirbæri ef þið viljið. http://en.wikipedia.org/wiki/Demashita!_Powerpuff_Girls_Z
Haaaaaaa? Ég held að þau hafi verið að draga mig út í þessum leik þarna í Stelpudeildinni. Man einhver hvaða nöfn voru sögð og/eða hvaða vinninga var verið að draga út? Ég var ekkert að fylgjast mikið með en ég held ég hafi heyrt þau segja nafnið mitt, því ég allavega sneri mér snöggt við og starði á sjónvarpið þegar ég heyrði það. OG þau voru að draga eitthvað út.. Skoða þetta á skjá einum plús á eftir til að sjá hvort það hafi verið rétt.
Öööö, hvar er Frasier (á Skjá Einum)? Er búið að færa hann eitthvað? Ekki er búið að hætta að sýna hann? Bara þetta beverly hills kjaftæði sem er á venjulega Frasier tímanum og ég sé Frasier hvergi í dagskránni.. Og já.. Veit einhver um þetta? Hvað finnst ykkur um þessa stelpudeild á skjá einum?
Djöfull verða börnin hans alltaf ljót.. Hafiði tekið eftir því. :0 Bjó til yndisfagra sims-konu og lét hana eignast barn með honum, og það urðu tvíburastelpur, mjög ólíkar, og mjög furðulegar báðar í útliti. En þó ekki eins furðuleg og geimverubörnin verða alltaf… Þoli ekki flötu andlitin þeirra. (:
Ég sá auglýsingu í gær um eitthvað tilboð eða eitthvað hjá KFC en byrjaði ekki að fylgjast með henni fyrr en það var orðið of seint. ;) En veit einhver hvað er innifalið í því og hvort það sé byrjað? Veit bara að það kostar 1900 eða 1999 eða eitthvað þannig.
Jeeeeeeej! Mig langar í svona afríkanskan dvergabroddgölt. ): http://www.africanpygmyhedgehogs.com/ ég meina almáttugur! Algjörlega brjálæðislega krúttleg dýr. Kanski mun ég eignast einn eða tvo í framtíðinni, hvar svo sem það verður, og hvenær. En já. Bara vekja athygli á þeim, eða eitthvað! Því þetta eru sniðug dýr.
…..HAlllllóóóóó það er ekki eins og hann sé búinn til úr HAMBORGURUM. þetta heitir HAMBORGARhryggur. Eins og.. Hryggur frá Hamborg eða eitthvað. Þetta bévítans auka A sem fólk vill endilega troða þarna inní fer alveg svakalega í pirrurnar á mér. =) En mmm hvað ég hlakka núna til að fá dýrindis hamborgarhrygg á föstudaginn..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..