Myndin reynir vissulega að vera ógeðfelld, reynir raunar svo mikið að hún verður alltof gervileg. Þau atriði sem sýndu slátrun á lifandi dýrum fóru fyrir brjóstið á mörgum. Ég hef hinsvegar vanið mig á að líta á svoleiðis efni útfrá sama sjónarhóli og fólk fylgist með krufningu mannslíkama, nauðsynlegt og náttúrulegt, jafnvel áhugavert. Þeim atriðum var auðvitað troðið inn í myndina akkurat til að valda hryllingi, sem sýnir betur fram á hversu smekklaus þessi mynd er. Mín skilgreining á...