Fyrst þurfti hún að koma við í þurrhreinsun og kannski líka í Hagkaup, það var nú í sama húsi. Rautt. RY877, rauð Toyota fyrir framan hana, að fjarlægjast. Ætli það séu tvær konur, eða karl og kona í honum? Allavega var eitthvað barn í afturglugganum sem hoppaði og spriklaði eins og það væri svona Garfield dúkka. Gunnar hafði einmitt átt svona Garfield dúkku þegar hann var lítill. Ekki svona eins og í gluggum á bílum, en samt…þetta var svona Garfield dúkka. Og núna var hann dáinn. Dáinn,...