Sem ég les þetta yfir þá sé ég að ég er í algjörri þversögn við sjálfan mig, ég byrja og enda á því að segja að það sé ekki þess virði að hugsa um svona fólk og að það fari ekki í taugarnar á mér en samt kemur þarna inn á milli þvílíkt löng útskýring á því af hverju þetta fólk er ömurlegt… Ég er kannski bara svona bitur. Oh, well, ég stend samt við þessa upptalningu, markmið hennar var að reyna að deila speki, hvort sem ég geri rétt í því eða ekki. :)