Þetta fær maður mjööööög oft, eiginlega alltof oft, jafnvel nokkrum sinnum á dag. Það er nú reyndar kannski vegna þess að ég er síðhærður og geng um í svörtu en ég lít alls ekki eins og hinn týpíski metalhaus sem er alltaf í hljómsveitarbolum og sömu gallabuxunum. Alveg ótrúlegt hvað fólk getur verið fordómafullt gegn fólki sem hreinlega er komið dýpra inn í tónlist en þau sjálf, vegna þess að þeir sem hafa virkilegan áhuga á tónlist, og þá meina ég hvaða tónlistarstefnu sem er, skilur okkur...