Úff, ég elska þessa bíla sko. Var þetta 1st gen eða? Veistu performance tölur af honum? Hvað var hann keyrður og hvað seldirðu hann á? Haha margar spurningar… þú verður bara að afsaka, er forvitinn. :)
Ahh, I see. En er það rétt að Eclipse-inn eyði í kringum 20 innanbæjar?! Hvað ertu búinn að gera við hann? Ég er á 17 ára gömlum Subaru Legacy með 2.2 lítra vél og hann eyðir ekki einu sinni 12 á hundrað innanbæjar! Þinn hlýtur að vera tjúnaður í drasl?
Ef ég væri þú þá myndi ég pottþétt safna upp í 15.000 kr og kaupa þennan Vox sem fyrst, þetta eru yndislegir magnarar með eitt besta clean sem völ er á og þeir seljast vanalega helvíti dýrt.
Haha já það er hann og ég er að læra gítar og er bara tiltölulega nýbyrjaður að spila á trommur (ár eða svo) en samt er ég trommarinn í báðum böndunum. Ég sem reyndar smá af efninu líka og svona… :) Fjölhæfni er skemmtilegri!
Ég var akkúrat lesandi alla söguna þeirra á síðunni þeirra… Þetta er klikkað project hjá þeim og bara synd að þeir fái ekki meira “publicity” hérna heima fyrir vegna þess að þessir gæjar eru heimsklassa!
Haha ég þarf varla að nefna það að ég var ekki að tala um sjálfan mig heldur allar hinar hljómsveitirnar… Síðan var bara stemningin mjög góð og skemmtilegt fólk. Jesús kristur hvað þú dæmir fólk maður…
Mjög efnilegt og gott íslenskt blackmetalband. Kom mér virkilega skemmtilega á óvart þegar ég hlustaði fyrst á þetta vegna þess að þetta eru vinir mínir og ég bjóst ekki við þessu frá þeim.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..