Sæll, Gaman að heyra svona af huguðum mönnum sem taka neðrideildarlið og gera þau að “stórveldi”. Sjálfur tók ég Darlington fyrir 7 tímabilum síðan. Ég fór rólega af stað og tók mér tíma í að byggja upp liðið fyrir lítin pening. Ég endaði í 13 sæti fyrsta tímabili og rétt hélt starfinu. Næsta komst ég í keppni um sæti í annari deild en tókst ekki. Svo tókst það loksins, eftir mörg leik-kerfi og miklar pælingar, fór uppí aðra deild. Þar eyddi ég tveimur tímabilum. Þar náði ég að styrkja liðið...