Fólk virðist ekkert fatta af hverju þetta blessaða reykingabann er að fara í gang.. Það er ekki verið að þröngva upp á reykingafólk að þau verði að hætta að reykja á djamminu eða kaffihúsum eða slíku heldur er verið að reyna að bæta heilsu fólks sem vinnur á skemmtistöðum. Ég hef sjálfur verið að vinna á kaffihúsi og svo líka á skemmtistað niðrí bæ og maður finnur alveg fyrir því ef maður er að vinna heilan dag í reykingarmökk. Ég á erfiðara með að anda og finnst það óþægilegt auk þess sem...