Peter Kenyon, forstjóri Manchester United, segir að það sé ánægjulegt að forsvarsmenn Real Madrid hafi reynt að kveða niður orðróm um að David Beckham sé á förum til Evrópumeistarana. Sögusagnir þess efnis fengu byr undir báða vængi eftir að Beckham var settur á varamannabekk United í leik þess gegn Madrid í fjórðungsúrslitum Meistaradeildarinnar í seinustu viku. Kenyon hitti Florentino Perez, forseta Real, á fundi G-14 hópsins, samtaka 18 stærstu knattspyrnuliða Evrópu, í Brussel á...