Þetta eru örugglega ágætis hundar en mín reynsla er ég var í sumarbústað þar sem voru tveir chihuahua hudar og það mátti varla snerta þá og þeir geltu mikið. Og það var kona að rækta þessa hunda á Akureyri, og þegar maður kom að skoða þá hættu þeir ekki að gelta og ég veit ekki um eitt tilvik að þeir hafi ekki verið að gelta þegar maður var þarna nálægt. En eins og ég sagði þá geta þetta örugglega verið fínir hundar ef þeir eru rétt upp aldir, en þetta eru allavega ekki hundar fyrir mig.