Já eins sorglegt og það er þá dæma svo margir eftir útlitinu en það þýðir ekki að það <u>eigi</u> að gera það. Eins og t.d. í Idolinu hérna heima, þá var einhver stelpa þarna með alveg frábæra rödd, en hún var nú, hvernig á maður að orða það svolítið í þykkari lagi. Mig minnir að hún heiti Arndís, og hún var örugglega með bestu frammistöðuna þarna eitt kvöldið, en var auðvitað ekki kosin áfram vegna þess að hún er ekki mjó. Mér finnst það mjög asnalegt.