Já eins og fyrirsögnin segir… Jólin eru að byrja enn og aftur, ekki misskilja, þetta er hátíðin sem er í langmestu uppáhaldi hjá mér, en hvenær verður nóg orðið takmark fyrir Íslendinga? Í alvöru, enn eina ferðina er byrjað á jólahöldunum ALLT, ALLT of snemma. Ég sat í bílnum í gær og var á leiðinni í skólann og systir mín heimtar að fá að hlusta á F.M. 102,2. Allt í lagi með það, en kemur ekki eitthvað jólalag? Þetta er ótrúlegt, fyrstu dagarnir í nóvember, og þetta er byrjað. Þessi hátíð...