Mér finnst þetta frábært svona. Á þennan hátt verður deildin samansafn af þeim bestu í heiminum, en ekki bara frá Englandi. Ef enska deildin á að halda áfram að vera sú vinsælasta og ein sú besta í heimi þá er þetta nauðsynlegt, enda miklu meira af hæfileikafólki í knattspyrnu utan Englands en heima fyrir, ef við miðum bara við fólksfjölda. Spurningin er: Viltu horfa á meðalmennskudeild með englendingum eða eina bestu deild í heimi með þeim bestu frá öllum heimshornum?