Ég er með ör á svæðinu fyrir neðan þumalputtann eftir að ég ætlaði að vera svaka artý þegar ég var í 6. bekk og búa til diskókassa. Ég var pirraður á að gera þetta og ætlaði að henda þessu en þegar ég greip um kassann skáru glerin og speglarnir, sem ég var búinn að líma á þetta, upp stóran part af hægri höndinni minni. Fékk eitthverja fjóra skurði en fékk bara ör eftir þann minnsta. Svo er ég með mjög dauft ör á hægri framhandleggnum eftir að horn á járnplötu gekk þangað inn.