Sorry Pala, en ég copy-aði þetta samt ekki frá þér. Þú veist hvað er sagt - great mindes think alike ;o) eða eitthvað svoleiðis…… og já mér finnst þetta fyndið..
Þetta var mjög góður þáttur. Kom mér á óvart hvað hann var spennandi og líka að þeim hafði tekist að reka Rubert. Mér finnst persónulega að það sé gott á þau að hann hafi verið rekinn í burtu. Sandra, Christa og Rubert voru orðin of montin og örugg með sér fyrir minn part. Hins vegar á eftir að koma í ljós hvort Burton geti veitt eitthvað. Ég held að hann sé sá sem geti gert það. Vona að þau reki Jon burtu næst - hann fer mikið í taugarnar á mér. En ég spái því að Burton og Lil verði í úrslitum..
Ég er alveg sammála þér með auglýsingarnar. Þær mega alveg byrja aðeins seinna. En hins vegar finnst mér í lagi að setja upp jólaljós snemma þ.e. svona í byrjun nóvember. Þó finnst mér að það sé algjör óþarfi að skreyta snemma eins og búðirnar gera t.d. Kringlan að setja upp jólaskreytingar 1.nóvember, þetta einfaldlega ruglar börnin sem halda að nú sé loksins orðið stutt í jólin. En þar sem skammdegið er mikið hérna hef ég ekkert á móti jólaLJÓSUM snemma og það er líka allt í lagi mín vegna...
Kannski gerir fjarlægðin fjöllin blá í þessu tilviki! En ef íslenska stelpan hefur reynst þér vel þá áttu endilega að halda í hana. Svo er líka spurningin hvað þessi erlenda er að pæla? Vill hún fara í alvarlegt samband við þig og þú þá setjast að í útlöndum eða koma með hana heim? Ég hef ekki reynslu í samböndum þar sem annar einstaklingurinn er frá öðru landi en hef heyrt um svoleiðis sambönd og þau geta víst stundum verið erfið. Oft þarf annar að gefa eftir heimaland sitt. En ég veit ekki...
Garfpt… Mér fannst ég ekki vera gelgja þegar ég var 14-15 ára. Alls ekki - ég! gelgja -Nei - alls ekki. En svo nokkrum árum seinna þá fór ég að gera mér grein fyrir því hvað ég var mikil gelgja :/ En þú hefur þó rétt fyrir þér að stelpur taka þetta öðruvísi út heldur en stelpur. (Bara mín persónulega skoðun) Og það er líka mjög einstaklingsbundið hversu hátt gelgjumælirinn fer.
Ef fjölskyldan á nógu mikinn pening þá getur hún flutt í annað hús. Þá veluru move out family (minnir mig) þegar þú ert í valmyndinni þar sem þú getur séð öll húsin (nágrenninu)
Mér finnst serían byrja mjög vel. T.d. fannst mér frábært að sjá keppendurnar stökkva út í sjóinn í fínu fötunum :) Það var vel hlegið á mínu heimili :) Líka finnst mér þessi skeggjaði risi alveg frábær - hundleiðinlegur en samt frábær. Þemað finnst mér mjög flott - verður eflaust mikið af óvæntum atburðum :) Ég held að þetta verði ágæt sería - allavegana betri en sú á undan…….
Það er líka hægt að hringja í fólkið og bara TALA, þá er hægt að viðhalda vináttunni án þess að hitta fólkið alltaf. En þá þarf að hringja eiginlega á hverjum degi svo að skalinn detti ekki niður en líka passa að hringja ekki oft á dag heldur - þessir simarar eru svo erfiðir……
Mér fannst Harry miklu skemmtilegri í þessari bók heldur en í hinum fjórum. Hann var ekki jafn saklaus og reynslulaus. Svo fannst mér JKR lýsa skapköstum hans frábærlega. Líka frábært að sjá að meira að segja Harry Potter á erfiða gelgju :)
Þú verður bara að láta simsinn skrópa í vinnunni einn dag og neyða hann til að hitta einhver, bjóddu einhverjum sem hann þekkir heim til hans. Gefðu gestinum að borða og skemmtu honum vel. Annars finnst mér voðalega þægilegt þegar ég er komin með vini, að hringja í þá regluleg til að spjalla, þá hækkar alltaf vinastuðullinn og þetta tekur styttri tíma heldur en að fá þá í heimsókn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..