Setti þetta á deigluna, en sá hvað þetta er mikið tuð, þannig að mér finnst frekar að þetta eigi heima hér hjá ykkur fýlupúkunum. Nú var í kastljósinu umræða um útlendinga í þjónustustörfum þar sem var samviskubits-fyrirlestur um óþolinmæði Íslendinga og horror-sögur um minnkandi viðskipti í bakaríi eftir að tvær þeldökkar manneskjur voru ráðnar í afgreiðslu. Mjög áhrifarík frétt í samfélagi þar sem kynþáttahyggja er höfuðsynd 1, 2 og 3. Talað var um að menn ættu að sjálfsögðu bara að notast...