Nú þegar líða tekur að formúluvertíðinni verða spekúlasjónir sífellt meiri um gengi liða og ökumanna. Best er að bæta aðeins í þann brunn. Einn athygglisverðasti ökumaður síðasta árs er án efa skoski séntilmaðurinn David Coulthard, sem á undraverðan hátt komst lítið slasaður frá átökum við dauðann sjálfan. Og var bókstaflega endurborinn eftir. En það er ekki nóg að vera góður ef þú ert ekki heppinn líka, og því fékk hann líka að kynnast á allmörgum keppnum. Ástralía, Brasilía, Belgía,...