Ég er í MR á málabraut, þetta er auðvitað erfiður skóli og ansi erfitt að skjóta sér undan því að læra, það lendir strax á manni. En mjög öflugur hvað varðar félagslíf og allt slíkt, það vantar ekki. Það ættu held ég allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar í félagslífinu þó svo það séu bara tvær brautir sem valið stendur um, náttúrufræði og málabraut.