Ég er með ofnæmi fyrir dýrum og það hryggir mig mjög mikið. Það er alveg sama hvaða dýr það er, ég fæ ofnæmi fyrir öllum húsdýrum, hundum, köttum, hestum, kindum, kúm. Líka fuglum, hömstrum og öllu þessu. Fyrir utan það er ég með gras- og frjóofnæmi. Þetta lýsir sér í öndunarerfiðleikum og asma, sem kemur fram eftir um 15-20 mínútur á stað þar sem viðkomandi dýr á heima, miklu fyrr ef ég fer inn í fjós eða álíka. Kláða, kláðablettum, pirringi í augum og nefi. En mig langar svo að eiga dýr!...