Ég sé að enginn hefur svarað þér, svo ég verð víst að gera það, vegna þess að þetta er uppáhalds staðurinn minn í heiminum:) Ég fór þarna sumarið 2002, nánar tiltekið 7. ágúst.(Er reyndar að pæla í að fara í sumar sama dag og þú) Það er ótrúlega margt hægt að gera og það er tiltölulega ódýrt. Bestu skemmtistaðirnir sem þú getur farið á eru KIU, MANGO og svo var þarna drullu töff staður sem heitir PALLADIUM og er reyndar í eigu einhvers spænsk mafíósa en þema staðarins er svona Egypskt hof...