“Saklausir borgarar þurfa ekki að deyja, og þetta stríð, sem og öll önnur stríð, verða til þess. Þð er hægt að koma Saddam frá völdum án stríðs, ´það er ég viss um.” Þetta hef ég oft séð frá mótmælendum (ekki það að ég sé endilega fylgjandi), að það sé hægt að koma honum frá án stríðs. Hvernig? Ég hef ekki ennþá séð neina aðra raunhæfa hugmynd sem mundi skila árángri. Vopnaeftirlit var búið að hafa allavega 10 ár og ekki virkaði það. Hvað annað er hægt að reyna? Góðar stundir.