Þótt það væri gaman að sjá Red Snapper á stærri stað, eins og t.d. Gauknum, held ég að þeir muni sóma sér vel á Vídalín. Vídalín er held ég sá staður sem bíður uppá rétta andrúmsloftið fyrir tónlistina þeirra. Af þeim tónlseikaupptökum sem ég hef séð frá þeim hafa staðirnir yfirleitt verið svipað dökkir, með svipaðri stemningu og finnst á Vídalín. Svo má alltaf, eins og ibbets benti á, tengja bara hátalara á efri hæðinni ef plássleysi veldur áhyggjum. Góðar stundir.