Ertu að grínast ég segi ekki meir. Hefurðu ekkert annað að gera enn að rakka niður verzló. Sjálf er ég í verzló og hef verið þar í 3 ár. Þó að skólinn hafi ákveðna ímynd að þá er það kannski ekki allt satt. Aumingja vinkona þín og allt það en flestar stelpurnar í skólanum ganga bara í venjulegum fötum, gallabuxum og peysu. Okei sumir eru á pinnahælum, en hvað með það….. skiptir það þig einhverju máli? Það er náttúrulega ekki gott að vinkona þín sé með anorexíu en óþarfi að kenna skólanum um...