Ég vill taka það fram að frásögnin sem kemur við sögu seinna í greininni er mjög ógeðfelld. Allir hafa tekið eftir því hversu mikil aukning hefur verið á klámi og öðru eins síðastliðin ár. Þetta er allstaðar á netinu og ekkert mál að komast í þetta. Klámið gefur unglingum á aldrinum 13 – 15 ára mjög ranga mynd af kynlífi. Síðan má líka nefna poppmyndböndin sem gefur kolranga mynd af kvenlíkamanum. Að flestum þeirra má dæma að kona eigi að klæða sig eins og hóra og hegða sér í samanburði við...