Jæja þá er stundin runnin upp. Eftir tveggja ára bið er Waitsarinn loksins búinn að kæta mann aftur. Í þetta skiptir er um að ræða 16 laga stykki þar sem hann fær hjálp frá hinum ýmsu snillingum úr öllum áttum. Til að nefna þá helstu eru Brain (f.v. trommari úr Primus ásamt ýmsum verkum með Zorn svo eitthvað sé nefnt) og Les Claypool, (höfuðpaur Primus)honum innan handar ásamt því að sonur hans Casey Waits sér um plötuspilarana. Þarna getur vel verið að fólki bregði, plötuspilara!! Jamm...