Fíkniefnabrot eru að mörgu leyti frábrugðin öðrum brotaflokkum þar sem þau eru í flestum tilvikum tengd frumkvæðisvinnu lögreglunnar. Í þessum brotaflokki eru kærendur nánast engir og nánast engin telur sig vera fórnarlamb. Samt sem áður eru það margir er telja sig hafa eitthvað um það að segja, hvort einhverjir kjósi að neyta efna sem eru eða voru á bannlista. Góðar hvatir Hjá flestum Íslendingum er vilja banna fíkniefni liggja góðar hvatir að baki, og ber að virða það. En í einfeldni...